Norðaustan og austan 3-10 m/s í kvöld, en 10-15 syðst. Víða léttskýjað um landið vestanvert, en stöku skúrir austantil og við suðurströndina.
Norðlæg átt 3-10 á morgun, en 8-13 á Austfjörðum. Dálitlar skúrir eða él á Norður- og Austurlandi, en bjart með köflum suðvestanlands.
Hiti 2 til 12 stig yfir daginn, hlýjast sunnan heiða.
Spá gerð 28.04.2024 18:18
Textaspáin gildir ef munur er á textaspá og sjálfvirkum spám!
Láglendi | |
---|---|
Hálendi | |
---|---|
Láglendi | |
---|---|
Hálendi | |
---|---|
Láglendi | |
---|---|
Hálendi | |
---|---|
Láglendi | |
---|---|
Hálendi | |
---|---|
Láglendi | |
---|---|
Hálendi | |
---|---|
Láglendi | |
---|---|
Hálendi | |
---|---|
Óyfirfarnar frumniðurstöður
Stærð | Tími | Gæði | Staður |
---|---|---|---|
2,3 | 28. apr. 14:33:10 | Yfirfarinn | 10,4 km VNV af Eldeyjarboða á Rneshr. |
1,8 | 28. apr. 14:56:04 | Yfirfarinn | 0,9 km NNA af Kröfluvirkjun |
1,7 | 27. apr. 06:39:38 | Yfirfarinn | 3,0 km NV af Eldeyjardrangi á Rneshr. |
Eldgos á Sundhnúksgígaröðinni
Eldgosið við Sundhnúk heldur áfram og líkt og síðan 5. apríl er einn gígur, skammt austan við Sundhnúk, virkur. Hraun rennur stutta vegalend til suðurs frá gígnum í opinni hrauná en lengra í lokuðum rásum. Hluti hraunbreiðunnar nærri varnargörðum austan Grindavíkur heldur áfram að þykkna hægt og rólega og hefur náð að hluta til yfir varnargarð L12. Áfram er jarðskjálftavirkni á svæðinu í lágmarki.
Sjá nánar í frétt á forsíðu
Upplýsingar um gasdreifingarspá má
sjá hér
Skrifað af vakthafandi jarðvísindamanni 28. apr. 09:05
Jarðskjálftavirkni á öllu landinu er lýst í vikuyfirliti sem birt er á vefnum. Náttúruvársérfræðingur á vakt skrifar vikuyfirlitið sem birt er á þriðjudögum. Þar er farið yfir virkni vikunnar á öllum jarðskjálftasvæðum og í eldstöðvarkerfum á landinu. Ef jarðskjálftahrinur eru í gangi, stærri skjálftar eða aðrir markverðir atburðir hafa orðið í vikunni er fjallað sérstaklega um það. Meira
Vatnsfall | Staður | Rennsli | Vatnshiti |
---|
Spáin gildir fyrir stór landsvæði og þarf því ekki að vera lýsandi fyrir byggð.
Landshluti | lau. 27. apr. | sun. 28. apr. | mán. 29. apr. |
---|---|---|---|
Suðvesturhornið
|
|||
Norðanverðir Vestfirðir
|
|||
Tröllaskagi utanverður
|
|||
Eyjafjörður innanverður (tilraunaverkefni)
|
|||
Austfirðir
|
Uppfært 26. apríl kl. 12:30
Eldgosið við Sundhnúk
heldur áfram og líkt og síðan 5. apríl er einn gígur, skammt austan við
Sundhnúk, virkur. Hraun rennur stutta vegalend til suðurs frá gígnum í opinni
hrauná en lengra í lokuðum rásum. Hluti hraunbreiðunnar nærri varnargörðum
austan Grindavíkur heldur áfram að þykkna hægt og rólega.
Landris í Svartsengi
heldur áfram á sama hraða og líkön gera ráð fyrir því að það magn kviku sem
bæst hefur við kvikuhólfið í Svartsengi frá því að eldgosið hófst 16. mars
nálgist nú 10 milljón m3 eins og línuritið hér að neðan sýnir. Í fyrri atburðum
hefur kvika hlaupið frá Svartsengi þegar á bilinu 8 til 13 milljónir m3 hafa
bæst við í kvikuhólfið frá síðasta kvikuhlaupi.
Lesa meira
Íslenski veturinn, frá fyrsta vetrardegi 28. október 2023 til og með 24. apríl 2024 var kaldur. Meðalhiti á landsvísu var -0,2 stig sem er, -1,2 stigum undir meðallagi síðustu tíu ára. Íslenski veturinn hefur ekki verið eins kaldur síðan veturinn 1998-99. Að tiltölu var kaldara á norðanverðu landinu. En veður var almennt gott. Það var hægviðrasamt og illviðri tiltölulega fátíð. Veturinn var óvenjulega þurr og sólríkur suðvestanlands og er veturinn sá sólríkasti í Reykjavík frá upphafi mælinga.
Lesa meiraEvrópa er ekki undanskilin þegar kemur að afleiðingum loftslagsbreytinga. Hlýnun mælist hröðust í Evrópu, en hiti álfunnar hækkar tvöfalt á við hnattræna hlýnun. Árið 2023 mældist hiti í Evrópu 1,0 °C hærri en meðalhiti viðmiðunartímabilsins 1991-2020 og 2,6 °C hærri en fyrir iðnbyltingu. Ársmeðalhiti var yfir meðallagi í nær allri álfunni árið 2023, ef frá eru talin Skandinavía, Ísland og suðausturhluti Grænlands.
Lesa meiraÍ dag er
liðinn einn mánuður frá upphafi eldgossins sem nú er í gangi á
Sundhnúksgígaröðinni. Eldgosið, sem hófst að kvöldi 16. mars, er það fjórða frá
því að kvikusöfnun hófst undir Svartsengi í lok október 2023. Eldgosið
nú hefur staðið lengst allra eldgosanna á Sundhnúksgígaröðinni í þessari hrinu
eldgosa og næstlengst þeirra gosa sem hafa orðið á Reykjanesskaga síðan 2021. Einungis
fyrsta eldgosið í Fagradalsfjalli sem hófst í mars 2021 er lengra, en það stóð
yfir í um 6 mánuði.
Í gær varð skjálftahrina í norðvesturhluta Öskju og mældust tæplega 30 skjálftar frá kl. 8 um morguninn til hádegis. Stærsti skjálftinn mældist 3,5 að stærð og varð á um 5 km dýpi. Einnig mældust þrír skjálftar frá 2,0 til 2,5 að stærð, en aðrir skjálftar voru minni. Jarðskjálftavirkni hefur lítið breyst á milli mánaða og verið nokkuð stöðug undanfarið þar til í gær. Síðast mældust skjálftar yfir 3 að stærð í janúar 2022 og október 2021.
Lesa meiraStundum má líta samspil náttúrulegra og manngerðra skýja. Klósigar eru náttúruleg háský en flugslóðar myndast þegar heitur og rakur útblástur frá þotum blandast köldu lofti. Í þurru lofti gufa flugslóðar hratt upp en þar sem loftið er rakt vara þeir lengur. Þess vegna geta þeir birst sem sundurslitin strik. Ef þotur fljúga yfir klósigabreiðu falla skuggar af flugslóðunum á háskýin.
Lesa meira