Norðaustan og austan 3-10 m/s, en 10-15 syðst. Víða léttskýjað um landið vestanvert, en stöku skúrir austantil og við suðurströndina.
Norðlæg átt 3-10 á morgun, en 8-13 á Austfjörðum. Dálitlar skúrir eða él á Norður- og Austurlandi, en bjart með köflum suðvestanlands.
Hiti 2 til 12 stig yfir daginn, hlýjast sunnan heiða.
Spá gerð 28.04.2024 21:02
Textaspáin gildir ef munur er á textaspá og sjálfvirkum spám!
Láglendi | |
---|---|
Hálendi | |
---|---|
Láglendi | |
---|---|
Hálendi | |
---|---|
Láglendi | |
---|---|
Hálendi | |
---|---|
Láglendi | |
---|---|
Hálendi | |
---|---|
Láglendi | |
---|---|
Hálendi | |
---|---|
Láglendi | |
---|---|
Hálendi | |
---|---|
Óyfirfarnar frumniðurstöður
Stærð | Tími | Gæði | Staður |
---|---|---|---|
2,3 | 28. apr. 14:33:10 | Yfirfarinn | 10,4 km VNV af Eldeyjarboða á Rneshr. |
1,8 | 28. apr. 14:56:04 | Yfirfarinn | 0,9 km NNA af Kröfluvirkjun |
1,7 | 27. apr. 06:39:38 | Yfirfarinn | 3,0 km NV af Eldeyjardrangi á Rneshr. |
Eldgos á Sundhnúksgígaröðinni
Eldgosið við Sundhnúk heldur áfram og líkt og síðan 5. apríl er einn gígur, skammt austan við Sundhnúk, virkur. Hraun rennur stutta vegalend til suðurs frá gígnum í opinni hrauná en lengra í lokuðum rásum. Hluti hraunbreiðunnar nærri varnargörðum austan Grindavíkur heldur áfram að þykkna hægt og rólega og hefur náð að hluta til yfir varnargarð L12. Áfram er jarðskjálftavirkni á svæðinu í lágmarki.
Sjá nánar í frétt á forsíðu
Upplýsingar um gasdreifingarspá má
sjá hér
Skrifað af vakthafandi jarðvísindamanni 28. apr. 09:05
Jarðskjálftavirkni á öllu landinu er lýst í vikuyfirliti sem birt er á vefnum. Náttúruvársérfræðingur á vakt skrifar vikuyfirlitið sem birt er á þriðjudögum. Þar er farið yfir virkni vikunnar á öllum jarðskjálftasvæðum og í eldstöðvarkerfum á landinu. Ef jarðskjálftahrinur eru í gangi, stærri skjálftar eða aðrir markverðir atburðir hafa orðið í vikunni er fjallað sérstaklega um það. Meira
Vatnsfall | Staður | Rennsli | Vatnshiti |
---|
Spáin gildir fyrir stór landsvæði og þarf því ekki að vera lýsandi fyrir byggð.
Landshluti | lau. 27. apr. | sun. 28. apr. | mán. 29. apr. |
---|---|---|---|
Suðvesturhornið
|
|||
Norðanverðir Vestfirðir
|
|||
Tröllaskagi utanverður
|
|||
Eyjafjörður innanverður (tilraunaverkefni)
|
|||
Austfirðir
|
Uppfært 26. apríl kl. 12:30
Eldgosið við Sundhnúk
heldur áfram og líkt og síðan 5. apríl er einn gígur, skammt austan við
Sundhnúk, virkur. Hraun rennur stutta vegalend til suðurs frá gígnum í opinni
hrauná en lengra í lokuðum rásum. Hluti hraunbreiðunnar nærri varnargörðum
austan Grindavíkur heldur áfram að þykkna hægt og rólega.
Landris í Svartsengi
heldur áfram á sama hraða og líkön gera ráð fyrir því að það magn kviku sem
bæst hefur við kvikuhólfið í Svartsengi frá því að eldgosið hófst 16. mars
nálgist nú 10 milljón m3 eins og línuritið hér að neðan sýnir. Í fyrri atburðum
hefur kvika hlaupið frá Svartsengi þegar á bilinu 8 til 13 milljónir m3 hafa
bæst við í kvikuhólfið frá síðasta kvikuhlaupi.
Lesa meira
Íslenski veturinn, frá fyrsta vetrardegi 28. október 2023 til og með 24. apríl 2024 var kaldur. Meðalhiti á landsvísu var -0,2 stig sem er, -1,2 stigum undir meðallagi síðustu tíu ára. Íslenski veturinn hefur ekki verið eins kaldur síðan veturinn 1998-99. Að tiltölu var kaldara á norðanverðu landinu. En veður var almennt gott. Það var hægviðrasamt og illviðri tiltölulega fátíð. Veturinn var óvenjulega þurr og sólríkur suðvestanlands og er veturinn sá sólríkasti í Reykjavík frá upphafi mælinga.
Lesa meiraEvrópa er ekki undanskilin þegar kemur að afleiðingum loftslagsbreytinga. Hlýnun mælist hröðust í Evrópu, en hiti álfunnar hækkar tvöfalt á við hnattræna hlýnun. Árið 2023 mældist hiti í Evrópu 1,0 °C hærri en meðalhiti viðmiðunartímabilsins 1991-2020 og 2,6 °C hærri en fyrir iðnbyltingu. Ársmeðalhiti var yfir meðallagi í nær allri álfunni árið 2023, ef frá eru talin Skandinavía, Ísland og suðausturhluti Grænlands.
Lesa meiraÍ dag er
liðinn einn mánuður frá upphafi eldgossins sem nú er í gangi á
Sundhnúksgígaröðinni. Eldgosið, sem hófst að kvöldi 16. mars, er það fjórða frá
því að kvikusöfnun hófst undir Svartsengi í lok október 2023. Eldgosið
nú hefur staðið lengst allra eldgosanna á Sundhnúksgígaröðinni í þessari hrinu
eldgosa og næstlengst þeirra gosa sem hafa orðið á Reykjanesskaga síðan 2021. Einungis
fyrsta eldgosið í Fagradalsfjalli sem hófst í mars 2021 er lengra, en það stóð
yfir í um 6 mánuði.
Í gær varð skjálftahrina í norðvesturhluta Öskju og mældust tæplega 30 skjálftar frá kl. 8 um morguninn til hádegis. Stærsti skjálftinn mældist 3,5 að stærð og varð á um 5 km dýpi. Einnig mældust þrír skjálftar frá 2,0 til 2,5 að stærð, en aðrir skjálftar voru minni. Jarðskjálftavirkni hefur lítið breyst á milli mánaða og verið nokkuð stöðug undanfarið þar til í gær. Síðast mældust skjálftar yfir 3 að stærð í janúar 2022 og október 2021.
Lesa meiraRykþyrlar eru algengir á hlýjum dögum á sendnu undirlendi og í kjölfar Eyjafjallajökulsgossins mátti sjá stóra öskuþyrla á Markarfljótsaurum sem þyrluðu öskunni hátt á loft. Í þessari grein má fræðast um þyrla og sveipi af ýmsu tagi, bæði á Íslandi og annars staðar. Veðurstofan þiggur ljósmyndir af slíkum fyrirbærum hérlendis.