Norðvestan og vestan 3-10 m/s. Rigning eða súld með köflum í flestum landshlutum. Styttir víða upp á morgun og rofar til um tíma vestan- og sunnanlands. Hiti 6 til 15 stig á morgun, mildast syðst.
Vaxandi sunnanátt við vesturströndina seint annað kvöld og fer að rigna.
Spá gerð 28.05.2024 22:17
Textaspáin gildir ef munur er á textaspá og sjálfvirkum spám!
Láglendi | |
---|---|
Hálendi | |
---|---|
Láglendi | |
---|---|
Hálendi | |
---|---|
Láglendi | |
---|---|
Hálendi | |
---|---|
Láglendi | |
---|---|
Hálendi | |
---|---|
Láglendi | |
---|---|
Hálendi | |
---|---|
Láglendi | |
---|---|
Hálendi | |
---|---|
Óyfirfarnar frumniðurstöður
Stærð | Tími | Gæði | Staður |
---|---|---|---|
2,8 | 27. maí 18:35:18 | Yfirfarinn | 185,8 km NNA af Kolbeinsey |
2,6 | 28. maí 01:01:11 | Yfirfarinn | 16,8 km N af Skjaldbreið |
2,5 | 27. maí 13:25:35 | Yfirfarinn | 6,8 km NNA af Hábungu |
Kvikusöfnun undir Svartsengi
Kvikusöfnun heldur áfram undir Svartsengi og gæti kvikuhlaup og eldgos hafist með skömmum fyrirvara. Merki um nýtt kvikuhlaup væru líkt og áður, staðbundin smáskjálftahrina í og við kvikuganginn, hröðun í aflögun og þrýstingsbreytingar í borholum á svæðinu
Sjá nánar í frétt á forsíðu
Skrifað af vakthafandi jarðvísindamanni 27. maí 01:58
Jarðskjálftavirkni á öllu landinu er lýst í vikuyfirliti sem birt er á vefnum. Náttúruvársérfræðingur á vakt skrifar vikuyfirlitið sem birt er á þriðjudögum. Þar er farið yfir virkni vikunnar á öllum jarðskjálftasvæðum og í eldstöðvarkerfum á landinu. Ef jarðskjálftahrinur eru í gangi, stærri skjálftar eða aðrir markverðir atburðir hafa orðið í vikunni er fjallað sérstaklega um það. Meira
Vatnsfall | Staður | Rennsli | Vatnshiti |
---|
Vatnavextir á Norður- og Austurlandi
Búist má við vatnavöxtum í ám og lækjum á Norður- og Austurlandi vegna leysinga í hlýindum sem er á þessum svæðum í dag og næstu daga.
Jökulsá á Sólheimasandi
Aukin rafleiðni hefur mælst í Jökulsá á Sólheimasandi undanfarna daga og hefur Veðurstofan fengið tilkynningar um aukna brennisteinslykt við jökulinn. Líklegast er um jarðhitavatn að ræða.
Vegna bilunar höfum við þurft að slökkva á þjónustunni sem birtir gögn frá vatnamælistöðvum á kortinu. Í staðinn er hægt að nálgast gögnin í Rauntímavöktunarkerfi.
Skrifað af vakthafandi sérfræðingi 27. maí 07:02
Spáin gildir fyrir stór landsvæði og þarf því ekki að vera lýsandi fyrir byggð.
Landshluti | þri. 28. maí | mið. 29. maí | fim. 30. maí |
---|---|---|---|
Suðvesturhornið
|
|||
Norðanverðir Vestfirðir
|
|||
Tröllaskagi utanverður
|
|||
Eyjafjörður innanverður (tilraunaverkefni)
|
|||
Austfirðir
|
Uppfært 28. maí 2024, kl: 18:30
Alls hafa um 400 jarðskjálftar mælst síðustu sjö daga nærri Sundhnúksgígaröðinni. Stærsti skjálftinn var 2,2 að stærð við Sundhnúk. Virknin dreifist frá Grindavík norðaustur að Stóra Skógfelli eftir kvikuganginum. Í gær mældust hátt í 100 jarðskjálftar á svæðinu og það sem af er degi í dag hafa mælst tæplega 70 skjálftar.
Landris við Svartsengi heldur
áfram á stöðugum hraða sem bendir til að kvika haldi áfram að safnast fyrir í
kvikhólfinu undir Svartsengi. Líkanreikningar áætla að um 20 milljón rúmmetrar
af kviku hafi bæst við kvikuhólfið síðan eldgosið hófst 16. mars. Engin gögn
benda til að það sé að draga úr flæði kviku inn í kvikuhólfið. Ekki er hægt að
áætla annað en að áfram séu miklar líkur á nýju kvikuhlaupi og öðru eldgosi.
Árið 2024 eru 30 ár síðan samningur Evrópska efnahagssvæðisins (EES) var undirritaður sem veitti Íslandi meðal annars aðgang að innri markaði Evrópusambandsins og aukin tækifæri til samstarfs í Evrópu. Ísland á aðild að fjölmörgum samstarfsáætlunum Evrópusambandsins í gegnum EES samninginn. Þessar áætlanir bjóða upp á tækifæri til samstarfs á fjölmörgum sviðum og hefur hver sínar áherslur og markmið. Veðurstofa Íslands hefur tekið þátt í fjölmörgum slíkum verkefnum. Eitt af stærri samstarfsverkefnum sem stofnunin hefur tekið þátt í og jafnframt leitt er verkefnið EUROVOLC (2018-2021). Verkefnið miðaði að samstarfi og samtengingu evrópskra eldfjallaeftirlits- og rannsóknarstofnanna.
Lesa meiraÍslenski veturinn, frá fyrsta vetrardegi 28. október 2023 til og með 24. apríl 2024 var kaldur. Meðalhiti á landsvísu var -0,2 stig sem er, -1,2 stigum undir meðallagi síðustu tíu ára. Íslenski veturinn hefur ekki verið eins kaldur síðan veturinn 1998-99. Að tiltölu var kaldara á norðanverðu landinu. En veður var almennt gott. Það var hægviðrasamt og illviðri tiltölulega fátíð. Veturinn var óvenjulega þurr og sólríkur suðvestanlands og er veturinn sá sólríkasti í Reykjavík frá upphafi mælinga.
Lesa meiraEvrópa er ekki undanskilin þegar kemur að afleiðingum loftslagsbreytinga. Hlýnun mælist hröðust í Evrópu, en hiti álfunnar hækkar tvöfalt á við hnattræna hlýnun. Árið 2023 mældist hiti í Evrópu 1,0 °C hærri en meðalhiti viðmiðunartímabilsins 1991-2020 og 2,6 °C hærri en fyrir iðnbyltingu. Ársmeðalhiti var yfir meðallagi í nær allri álfunni árið 2023, ef frá eru talin Skandinavía, Ísland og suðausturhluti Grænlands.
Lesa meira